Áfangastaðir – í stuttu máli

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2021 124 2.590 kr.
spinner

Áfangastaðir – í stuttu máli

2.590 kr.

Áfangastaðir í stuttu máli
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2021 124 2.590 kr.
spinner

Um bókina

Ísland hefur á skömmum tíma orðið geysivinsæll áfangastaður ferðamanna í takt við hnattrænan vöxt ferðamennsku. Þótt heimsfaraldurinn hafi um stund hægt á straumnum bendir allt til þess að gestkvæmt verði á landinu um ókomna tíð. Umræða um stjórnun og skipulag ferðaþjónustu er áberandi enda hefur uppbygging innviða til að þjónusta ferðamenn margs konar áhrif á landslag og samfélög og hefur víða reynst umdeild. Í grundvallaratriðum snýst þessi umræða um mótun áfangastaða.

Markmið bókarinnar Áfangastaðir – í stuttu máli er að draga upp nýja mynd af því hvernig áfangastaðir verða til og þróast. Með hliðsjón af uppbyggingu ferðamennsku á Ströndum er rýnt í samband ferðaþjónustu og samfélaga og sýnt hvernig náttúra og menning eru samofin svið en ekki aðgreind eins og oft er látið í veðri vaka. Með þessu er spjótum beint að hefðbundnum rannsóknaraðferðum ferðamálafræðinnar og bent á nýjar leiðir til að nálgast og veita innsýn í margbreytileika ferðamennskunnar og áfangastaða ferðamanna.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning