Árbók 2022 – Undir jökli, frá Búðum að Ennisfjalli

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 263 7.590 kr.
spinner

Árbók 2022 – Undir jökli, frá Búðum að Ennisfjalli

7.590 kr.

Árbók 2022 - Undir Jökli
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 263 7.590 kr.
spinner

Um bókina

Árbók Ferðafélags Íslands 2022, sem er sú nítugasta og fimmta í röðinni, fjallar um ysta hluta Snæfellsness – frá Búðum að Ennisfjalli.

Höfundurinn, Sæmundur Kristjánsson, fæddist á Hellissandi en ólst að mestu upp í Rifi. Hann starfaði í áratug sem hafnarvörður í Rifshöfn og síðar sem verkstjóri hjá sveitarfélaginu í mörg ár. Á níunda áratug síðustu aldar hóf Sæmundur að segja ferðamönnum til vegar um Snæfellsnesfjallgarð og allt svæðið undir Jökli og árið 2006 lauk hann svæðisleiðsögunámi. Menningarnefnd Snæfellsbæjar útnefndi Sæmund Snæfellsbæing ársins 2016 fyrir skerf hans til kynningar á sögu og náttúru Snæfellsness. Sérkafli er um náttúruna undir Jökli eftir Daníel Bergmann. Eins og Sæmundur á Daníel ættir að rekja til Snæfellsness og þekkir náttúrufar svæðisins vel, ekki síst fuglalífið. Hann er einnig höfundur langflestra ljósmynda í bókinni.

Bókin er 263 blaðsíður með 224 myndum og 12 uppdráttum sem Guðmundur Ó. Ingvarsson dró upp. Bókin er litprentuð með heimildaskrá ásamt örnefna- og mannanafnaskrám. Í bókarlok er greint frá starfi FÍ og deilda þess á landsbyggðinni á árinu 2021. Ritstjóri árbókarinnar er Gísli Már Gíslason og ritnefnd skipa auk hans Eiríkur Þormóðsson og Guðrún Kvaran. Daníel Bergmann annaðist umbrot og myndvinnslu.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Árbók 2022 – Undir jökli, frá Búðum að Ennisfjalli”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

Fálkinn
5.890 kr.
190 kr.

INNskráning

Nýskráning