Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Bærinn sem hvarf: Í ösku og eldi 1362
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 320 | 5.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 320 | 5.990 kr. |
Um bókina
Hamfarir eins og eldgos hafa riðið yfir jörðina og mannkynið frá upphafi vega. Eldgos umbreyta umhverfi og mannlífi, skapa og eyða á víxl svo ekkert verður samt.
Í þessari bók fjallar Dr. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur á Fornleifafræðistofunni um ýmsar hamfarir, einkum eldgos, sem mannkynið hefur mátt þola í aldanna rás og um áhrif þeirra á menningu og mannlíf. Í brennidepli er miðaldabýlið Bær í Öræfum sem fór í eyði á augnabliki árið 1362 þegar Öræfajökull gaus sínu stóra gosi. Gosið var af sama meiði og gosið í Vesúvíusi árið 79 e.Kr. en það eyddi Pompei og fleiri borgum á Ítalíu.
Í Bæ stóðu fornleifarannsóknir yfir árin 2002–2009 og eru niðurstöður þeirra kynntar í bókinni.