Bakkadrottningin Eugenía Nielsen

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2022 404 7.290 kr.
spinner

Bakkadrottningin Eugenía Nielsen

7.290 kr.

Bakkadrottningin Eugenía Nielsen
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2022 404 7.290 kr.
spinner

Um bókina

Hér segir frá kaupmannskonunni Eugeníu Nielsen (1850–1916) sem gerði Húsið sögufræga á Eyrarbakka að miðstöð félags- og menningarlífs á Suðurlandi á síðari hluta nítjándu aldar og fyrstu árum þeirrar tuttugustu. Þangað komu innlendir og erlendir rithöfundar, tónlistarfólk og listmálarar, sumir árlega, og miðluðu list sinni.
Eugenía var kvenskörungur, stjórnsöm og virðuleg húsmóðir sem gekk ríkt eftir reglu og þrifnaði en auk þess ákaflega gestrisin og hjálpfús. Óþreytandi framfarahugur hennar og menningaráhugi skapaði einstakt andrúmsloft í litla þorpinu við ströndina og nærsveitum þess. Eugenía beitti sér fyrir stofnun og starfsemi bindindisfélags, kvenfélags, leikfélags, söngfélags og ungmennafélags og gekk fram fyrir skjöldu í líknarmálum margs konar í þágu fátæks fólks og bágstaddra.

Höfundur bókarinnar, Kristín Bragadóttir, fæddist og ólst upp á Eyrarbakka og þekkir því vel til sögusviðsins. Hún er doktor í menningar- og bóksögu frá Háskóla Íslands. Bakkadrottningin er þriðja bók hennar en áður hefur hún gefið út tvær bækur um Willard Fiske og bókasöfnun hans.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Bakkadrottningin Eugenía Nielsen”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning