Dvergurinn frá Normandí

Útgefandi: Bókabeitan
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2021 396 4.290 kr.
spinner

Dvergurinn frá Normandí

Útgefandi : Bókabeitan

4.290 kr.

Dvergurinn frá Normandí
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2021 396 4.290 kr.
spinner

Um bókina

Fjórar ungar stúlkur sitja við útsaum undir leiðsögn fanga og dvergs. Sagan gerist í klaustri á Englandi og notar höfundur Bayeux-refilinn til að flétta saman sögur af saumastúlkunum fjórum og frásögn af sannsögulegum atburðum sem enduðu í mannskæðri orrustu við Hastings, syðst í Englandi, árið 1066. Þannig veitir hann innsýn í mikilvægan kafla í Evrópusögunni, fjallar um tíðarandann, valdabaráttu höfðingjanna og kirkjunnar manna, og afleiðingar stríðsins á líf fólksins í landinu.

Sannir örlagaatburðir eru listilega ofnir inn í lifandi frásögn um vaknandi meðvitund unglinganna um ástina og illsku mannanna, sögu sem þó á sér óvænt endalok.

Lars-Henrik Olsen, líffræðingur og rithöfundur, er þekktur fyrir unglingabækur sem hann byggir á
sögulegum atburðum. Auk þess hefur hann gefið út skáldverk fyrir fullorðna og ýmis rit um náttúruna. Dvergurinn frá Normandí hlaut á sínum tíma barnabókaverðlaun skólabókasafna í
Danmörku og kemur nú út í fyrsta skipti í þýðingu Steinunnar Jónu Sveinsdóttur.

Tengdar bækur

Opnunartímar á Fiskislóð

Virka daga 10-18
Laugardaga 11-17
Sunnudaga 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning