Erfðir og líftækni

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2007 195 6.290 kr.
✓
spinner

Erfðir og líftækni

6.290 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2007 195 6.290 kr.
✓
spinner

Um bókina

Hér er skyggnst um í hinni ósýnilegu veröld erfðanna, sem þó blasir við á hverjum degi. Í fáum greinum hafa orðið viðlíka framfarir á undanförnum árum og áratugum, en jafnframt eru merkar uppgötvanir um lögmál erfða allt frá 19. öld enn í fullu gildi. Erfðafræðingar nútímans ráða yfir tækni til að rannsaka smæstu einingar erfðaefnisins, vinna með það á margvíslegan hátt og breyta því. Þannig hefur vaxið upp víðfeðm starfsemi þar sem erfða- og líftækni er hagnýtt.

Hér er veitt innsýn í þessa tækni, í hverju hún felst og hvaða möguleika hún skapar. Jafnframt er gamalgróinni og glænýrri þekkingu á erfðum og erfðafræði gerð skil. Þá er fjallað um erfðasjúkdóma, einkenni þeirra, orsakir og leit að lækningu, enda hafa uppgötvanir síðustu ára skapað nýja möguleika á sviði lyfjaframleiðslu og genalækninga.

Bókinni er ætlað að mæta sívaxandi þörf nemenda, fagfólks og sérfræðinga á ýmsum sviðum fyrir ítarlega umfjöllun um þetta efni. Tekið er mið af námskrá fyrir framhaldsskóla, en jafnframt haft í huga að bókin nýtist þeim sem lengra eru komnir í námi sem stuðningsrit. Hvers kyns myndir setja svip sinn á efnið en þær útskýra oft flókna hluti betur en mörg orð.

Tengdar bækur

1.590 kr.
Original price was: 4.590 kr..Current price is: 3.902 kr..
4.090 kr.
4.490 kr.
4.290 kr. – 4.990 kr.
2.690 kr.
4.090 kr. – 4.590 kr.
Original price was: 4.090 kr..Current price is: 3.477 kr..
3.690 kr.
3.290 kr.
3.690 kr. – 4.690 kr.
4.490 kr.
4.990 kr. – 7.690 kr.

INNskráning

Nýskráning