Fjallabak, Landmannalaugar, Þórsmörk, Laugavegur og fleiri perlur – 24 úrvals göngu- og reiðleiðir

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kort 2001 1.290 kr.

Fjallabak, Landmannalaugar, Þórsmörk, Laugavegur og fleiri perlur – 24 úrvals göngu- og reiðleiðir

1.290 kr.

Fjallabak
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kort 2001 1.290 kr.

Um bókina

Fjallabak, þar má finna mörg fegurstu svæði landsins bak við bratta jökla og illúðleg eldfjöll. Sjaldgæfar bergtegundir svo slær á fjallshlíðarnar hvítum litum, rauðum, gulum, svörtum og jafnvel bleikum.Þetta eru staðir eins og Landmannalaugar, Þórsmörk, hina vinsælu gönguleið Laugaveginn og mörg önnur.

Kortin eru unnin upp úr hinni margrómuðu verðlaunabók Þúsund og ein þjóðleið eftir Jónas Kristjánsson sem kom út árið 2011. Bókin hlaut menningarverðlaun DV og bóksalar völdu bókina bestu fræði- og handbók ársins í fyrra. Þjóðleið kallast sú leið sem venja hefur skapast um að fólk og fararskjótar fylgi milli tveggja staða. Fornar þjóðeiðir á Íslandi eru jafnan göngu- og reiðleiðir sem á skilgreindu tímabili hafa gegnt hlutverki alfaraleiðar.

Kortin koma bæði út á íslensku og ensku. Þau eru í plastvasa og hentug í ferðalagið hvort sem er farið fótgangandi eða á hestum.

Á hverju korti verða ca. 40 úrvals göngu- og reiðleiðir. Kortin eru nákvæm með skýrari hæðalínum (20 m), stærri hlutföllum (1/100.000), ásamt fallegum nátturu- og sögulýsingum sem endurspegla landslagið frábærlega.  Jónas Kristjánsson hefur áratugum saman safnað og skrásett þær þjóðleiðir sem þessi kortaröð geymir. Leiðarlýsingar má rekja til fornra heimilda og nýrra, auk þess sem höfundur byggir á eigin reynslu af staðháttum.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning