Saga Íslands V
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1990 | 999 |
|
Saga Íslands V
3.790 kr. 1.990 kr.

Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1990 | 999 |
|
Um bókina
Meginefni 5. bindis í ritröðinni Saga Íslands er saga 15. aldar og upphafs hinnar 16. Sagan hefst með plágunni miklu 1402-04 og lýkur þegar dansk-norska konungsvaldið hefur tryggt yfirráð sín á Íslandi.
Lýst er umsvifum Englendinga hér og átökum þeirra við Þjóðverja; einnig innbyrðis erjum Íslendinga og vanmáttugri valdstjórn. Þá segir af árekstrum milli kirkju- og leikmannahöfðingja og hversu kirkjan efldist að auði og völdum, svo og trúarboðskap hennar og menntum. Loks er vikið að endalokum afkomenda Íslendinga á Grænlandi og hvernig Ísland kemur við sögu landafundanna.
Í bókmenntasögunni er greint frá riddarasögum, fornaldarsögum, sagnadómum, rímum, helgikvæðum og veraldlegum kveðskap. Í myndlistarsögunni er lýst áhrifum gotneska stílsins, búnaði kirkna og sagt er frá einstökum listamönnum. Fjöldi mynda er í ritinu og nokkrir uppdrættir. Þar eru ítarlegar ritaskrár sem eiga að auðvelda lesendum að afla frekari fróðleiks.
Ritstjóri: Sigurður Líndal.”