Flateyjargáta
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2002 | 284 | Verð 990 kr. | ||
Kilja | 2003 | 284 | Verð 990 kr. | ||
Kilja | 2018 | 284 | Verð 3.490 kr. |
Flateyjargáta
Verð frá 990 kr.

Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2002 | 284 | Verð 990 kr. | ||
Kilja | 2003 | 284 | Verð 990 kr. | ||
Kilja | 2018 | 284 | Verð 3.490 kr. |
Um bókina
Flateyjargáta (2002) er fjórða skáldsaga Viktors Arnar Ingólfssonar og ein helsta sagan í hópi menningarlegra glæpasagna á íslensku. Hún fellur einnig í flokk sögulegra skáldsagna því hún gerist upp úr miðri tuttugustu öld.
Þegar lík finnst í útskeri á Breiðafirði 1. júní 1960 er óreyndur fulltrúi sýslumannsins á Patreksfirði sendur á vettvang til að kanna málið. Rannsóknin vindur upp á sig og teygir anga sína til Reykjavíkur og annarra landa.
Miðpunktur sögunnar er þó í Flatey og bókin sem við eyna er kennd, Flateyjarbók, gegnir lykilhlutverki við lausn gátunnar. Þetta er margslungin og spennandi sakamálasaga og þótti verðugur arftaki sögunnar Engin spor (1998) sem vakti athygli bókmenntaunnenda á þessum höfundi.
Flateyjargáta hefur nú verið endurútgefin í nýrri kiljuútgáfu í tilefni þess að sjónvarpsþáttaröð sem byggist á bókinni hefur göngu sína á RÚV í nóvember 2018.