Fræðarinn 1

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2004 458 2.990 kr.
spinner

Fræðarinn 1

2.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2004 458 2.990 kr.
spinner

Um bókina

Klemens frá Alexandríu var einn af hinum svonefndu kirkjufeðrum kristninnar. Hann starfaði í borginni Alexandríu í Egyptalandi á ofanverðri annarri öld eftir Krist og hafði mikil áhrif á mótun kristinnar trúar með því að hann varð fyrstur kristinna manna til að flétta skipulega saman gríska heimspeki og hina gyðing-kristilegu hugsun. Menningarsögulegt gildi verka hans er því ótvírætt. Klemens hlaut gríska menntun og þekkti vel til heimspeki Platons, Aristótelesar og stóuspekinganna, enda gætir víða áhrifa þeirra á hugsun hans. Hann leit svo á að heimspekin færði manni heim mikilvæga þekkingu á sjálfum sér, heiminum og Guði, þótt hún væri að vísu ekki nema hjálpartæki á vegi mannsins til hjálpræðis.

Fræðarinn er eitt grundvallarrita Klemensar. Hugsanlegt er að bókin hafi verið rituð sem leiðsagnarkver í kristilegu uppeldi, en í henni setur höfundur fram guðfræðilega undirstöðu kristinnar siðfræði. Maðurinn er skapaður í Guðs mynd og fullkomnun hans felst í aðlögun að Guði. Í augum Guðs erum við börn á þroskabraut og fræðari okkar er Kristur, sem hvetur, ráðleggur og huggar. Það er með því að reyna að líkjast honum í verkum okkar sem við ræktum með okkur allar dygðir. Í umfjöllun sinni um uppeldi, menntun og siðferði leggur hann út af hugtakinu paidagogos eða fræðari, sem vísar til þess sem í hefðbundnu grísku uppeldi hafði öllum stundum umsjón með dreng og var ábyrgur fyrir því að koma honum til manns. Kristur, hið holdgerða Orð, er fræðari okkar í þessum skilningi en einnig kennari.

Bókinni fylgir ítarlegur inngangur eftir Clarence E. Glad þar sem guðfræði Klemensar, áhrifavöldum hans og stöðu kristindómsins á 2. öld eru gerð skil. Auk þess geymir þessi útgáfa fjölda skýringa og viðauka, lesendum til glöggvunar.

Annað rit Klemensar frá Alexandríu, Hjálpræði efnamanns, hefur einnig komið út sem Lærdómsrit.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning