Grettir

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2011 73 2.490 kr.
spinner

Grettir

2.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2011 73 2.490 kr.
spinner

Um bókina

Sagan af Gretti sterka er margföld og þéttofin ferðasaga, frá heiðnum tíma fram í helgan stein, um íslenskar miðaldabókmenntir, skráðar og óskráðar, frá Noregi til Íslands og þaðan til Miklagarðs, hringferð um Ísland.

Í þessari bók eru sextán brot úr sögunni með jafnmörgum afbragðsteikningum Halldórs Péturssonar af atburðum úr lífi Grettis. Þessar myndir koma nú fyrst fyrir sjónir almennings á bók.

Í ítarlegum inngangi varpar Örnólfur Thorsson áhugaverðu ljósi á byggingu sögunnar og stöðu hennar meðal Íslendinga sagna. Þessi greinargóði og upplýsandi formáli ásamt hinum glæsilegu myndum gera bókina einkar áhugaverða fyrir þá sem ekki þekkja efnið fyrirfram en vilja kynnast spennandi heimi íslenskra fornbókmennta.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning