Húsálfurinn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Geisladiskur 2008 CD 1.130 kr.
spinner

Húsálfurinn

1.130 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Geisladiskur 2008 CD 1.130 kr.
spinner

Um bókina

Lítill húsálfur á heima í húsagarði og hefur ekki hugmynd um að hann sé í raun húsálfur. Dag einn rekst gamall húsálfur á hann og segir honum að hann eigi að búa í íbúðarhúsi. Þar sé hann á réttum stað. Þeir verða vinir og saman finna þeir húsið sem litli álfurinn á að búa í. Hann kynnist heimilisfólkinu, fullorðnum hjónum og skjaldbökunni þeirra sem er hægfara og þykist vita allt. Þarna er líka páfagaukur sem er búinn að ferðast langt út í heim og veit sannarlega hvað hann syngur. Nú er litli húsálfurinn orðinn raunverulegur húsálfur.

Jónas Jónasson er löngu þjóðkunnur fyrir fjölda útvarpsþátta og ritstörf sín. Hann hefur sérlega gott lag á að laða að sér hlustendur, hvort sem þeir eru börn eða fullorðnir. Húsálfurinn er skemmtileg saga fyrir börn á öllum aldri.

ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning