Veðrafjall
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2023 | 283 |
|
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2023 | 283 |
|
Um bókina
Í miðjum Jónsmessufagnaði í bænum Stenräsk flýtur lík upp úr Köldumýri. Í fyrstu er talið að þetta sé lík eiginkonu lögreglustjórans Wikings Stormberg sem hafði horfið fyrir mörgum árum. En svo kemur í ljós að líkið er af karlmanni. Það hafði verið fest við botn mýrinnar með stiku í gegnum hjartað – eins og í vampírusögu.
Við rannsókn málsins hverfur Wiking á vit fortíðarinnar og sogast óvænt inn í eigin fjölskyldusögu þar sem ískyggileg leyndarmál opinberast honum í fyrsta sinn. Mögnuð spennusaga um ofbeldi og þrár, kúgun og arðrán – á fólki jafnt sem náttúru.
Veðrafjall er sjálfstætt framhald metsölubókanna Heimskautsbaugur og Kaldamýri sem hlotið hafa einróma lof gagnrýnenda. Bókin kemur út í sama mund á öllum Norðurlöndum. Verðlaunahöfundurinn Liza Marklund er óumdeild drottning norrænna glæpasagna. Bækur hennar hafa selst í yfir 23 milljónum eintaka og meðal annars komist í efsta sæti metsölulista New York Times.
„Liza Marklund kann þá list að skrifa glæpasögur … Enginn verður fyrir vonbrigðum með þessa nýju bók hennar. … Heildareinkunn: 5 – Frábær!“ BTJ
Umsagnir
Engar umsagnir komnar