Illfyglið
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 212 | 4.490 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 212 | 4.490 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. |
Um bókina
Illfyglið er fyndin og feykilega spennandi saga ætluð átta til tólf ára lesendum. Þetta er lokabindið í þríleiknum um Húgó og Alex og hættuför þeirra til að bjarga heimabyggð sinni.
Húgó og Alex eru búin að týna hvort öðru en halda þrátt fyrir það áfram leitinni að síðustu steinstyttunni. Á meðan þau kljást við úrillan dreka, blóðþyrsta drottningu og allt of kurteist skrímsli, sveimar Illfyglið yfir öllu saman og veit að brátt mun tími þess renna upp.
Sigrún Elíasdóttir er afar matvönd og vildi helst geta ljóstillífað eins og planta. Reyndar þykir henni svo leiðinlegt að borða og svo gott að vaka á nóttunni að hún gæti hugsanlega talist vampíra.
Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson hefur teiknað Húgó, Alex og öll skrímslin frá upphafi. Hann fékk nýlega gullverðlaun FÍT fyrir verk sín.
1 umsögn um Illfyglið
embla –
„Þríleikurinn um ferðina á heimsenda er hröð og æsispennandi furðusaga fyrir börn, sem vel er hægt að mæla með. Ævintýraþyrstir lesendur ættu ekki að láta þríleikin fram hjá sér fara.“
Katrín Lilja Jónsdóttir / Lestrarklefinn