Ísland í Eyjahafinu

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2019 243 4.790 kr.
✓
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2019 243 4.790 kr.
✓
spinner

Um bókina

Í sjálfstæðisbaráttunni þurftu Íslendingar að ná máli sem fullgild menningarþjóð. Þeir litu þá ekki síst til sögufrægra þjóða eins og Forn-Grikkja um fyrirmyndir.

Sigurður Guðmundsson málari setti á svið atriði úr eddukvæðum og fornsögum sem sýndu hetjur í hellenskum stíl. Benedikt Gröndal blandaði saman grískum og íslenskum minnum í skrifum sínum og félagar í Kvöldfélaginu æfðu klassíska mælskulist í kappræðum um þjóðmál. Íslendingar lærðu einnig af öðrum þjóðum að lofsyngja landið í ættjarðarljóðum sem urðu að æðstu tjáningu íslensks þjóðernis. Þannig reynist hið þjóðlega oft vera af alþjóðlegum rótum runnið.

Í bókinni er fjallað um þessa og aðra þætti í menningarviðleitni Íslendinga frá 18. og fram á 20. öld.

Sveinn Yngvi Egilsson er prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands.

Tengdar bækur

3.690 kr.
2.590 kr.
4.490 kr.
1.790 kr.
1.890 kr.
1.990 kr. – 4.990 kr.
4.090 kr.
6.290 kr.

INNskráning

Nýskráning