Íslensk tunga: Setningar – III. bindi – PDF skjal

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Stykki 2013 PDF 1.765 kr.
spinner

Íslensk tunga: Setningar – III. bindi – PDF skjal

1.765 kr.

Íslensk tunga - III. bindi
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Stykki 2013 PDF 1.765 kr.
spinner

Um bókina

Íslensk tunga III er nú einungis seld sem sérútbúið vatnsmerkt pdf-skjal.
Til að fá eintakið afhent í tölvupósti þarft þú kaupa það hér á vefnum, velja „Sótt í verslun“, og senda svo staðfestingarpóst til okkar gegnum netfangið forlagid@forlagid.is.

Í Íslenskri tungu I-III varpa virtir fræðimenn ljósi á innviði íslenskunnar og kynna aðferðir vísindanna við að greina málið og skilja. Lesa má um smæstu hljóðbylgjur, kerfi íslenskra málhljóða, beygingu orða og innri gerð, allt til íslenskrar setningagerðar. Aukinheldur er fjallað um sögulega þróun móðurmálsins og vikið að forvitnilegum greinum eins og hljóðskynjun, máli og tölvum, orðræðugreiningu, málstoli og máltöku barna. Saman spanna því bækurnar þrjár vítt svið málvísinda. Þær eru nauðsynlegar öllum þeim sem vinna með tungumálið, vilja kynna sér það til hlítar og fylgjast með fræðigreininni sem við það fæst.

Verkið skiptist í bindi eftir höfuðgreinum málvísindanna:

  • Íslensk tunga I. Hljóð. Handbók um hljóðfræði og hljóðkerfisfræði. Aðalhöfundur og ritstjóri Kristján Árnason, meðhöfundur Jörgen Pind.
  • Íslensk tunga II. Orð. Handbók um beygingar- og orðmyndunarfræði. Höfundur og ritstjóri Guðrún Kvaran.
  • Íslensk tunga III. Setningar. Handbók um setningafræði. Aðalhöfundur og ritstjóri Höskuldur Þráinsson, meðhöfundar: Eiríkur Rögnvaldsson, Jóhannes Gísli Jónsson, Sigríður Magnúsdóttir, Sigríður Sigurjónsdóttir og Þórunn Blöndal.
Lýðveldissjóður kostaði ritun verksins í tilefni af 50 ára afmæli lýðveldis Íslands. Edda annaðist útgáfu. Verkið var tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2005.

INNskráning

Nýskráning