Lesum lipurt fyrir Tóta trúð, 2 hefti

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2018 2x44 3.990 kr.
spinner

Lesum lipurt fyrir Tóta trúð, 2 hefti

3.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2018 2x44 3.990 kr.
spinner

Um bókina

Sigríður Ólafsdóttir er sérkennari og hefur sérhæft sig í máltöku, lestri og lestrarkennslu yngri barna. Hún hefur samið margar lestrarbækur undir heitinu Lesum lipurt.

Nýjustu bækurnar í þeim bókaflokki eru:

Lesum lipurt fyrir Tóta trúð

1. hefti og 2. hefti.

Bækurnar eru ætlaðar byrjendum í lestri. Lögð er áhersla á að æfa vel hvern staf, hvert hljóð og tengingu milli hljóða. Lestextinn er einfaldur, sérstaklega í byrjun, þannig að börnin finni fljótlega fyrir getu sinni. Markmiðið er einnig að þau hafi ánægju af lestrinum. Í bókunum eru ýmis önnur verkefni sem tengjast nefnihraða, hljóðgreiningu, rökhugsun, athygli o. fl. Með bókunum er hægt að kaupa sérstök stafaspjöld, sem einkum eru ætluð kennurum og öðrum við stafainnlögn og kennslu. Á hverju spjaldi er mynd og stafur og romsa til að þylja um stafinn. Einnig eru ýmsar tillögur að heimspekilegum umræðuefnum sem nýtast vel við að auka orðaforða og efla málskilning.

Loks eru verkefni sem heita „Tungubrjótur“. Þau eru ætluð til að þjálfa talfærin og talvöðvana með áherslu á skýran og réttan framburð.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Lesum lipurt fyrir Tóta trúð, 2 hefti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning