Lúin bein

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2002 221 990 kr.
spinner

Lúin bein

990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2002 221 990 kr.
spinner

Um bókina

Það er stór stund í sögu þjóðarinnar og lífi Jafets Jasonarsonar fornleifafræðings þegar lítið silfurskrín frá miðöldum gægist upp úr jörðu við uppgröft í Þykkvabænum, og í því sköflungur – trúlega úr Þorláki helga. Um það bil sem fornleifafræðingar búast til að flytja hina helgu dóma til Reykjavíkur gerast voveifleg tíðindi og áður en birtir af morgni hefur Jafet Jasonarson ferðast um myrkviði Reykjavíkur, fastur í snöru forhertra glæpamanna sem aldrei láta feng sinn fyrir lítið.

Lúin bein eftir Helga Ingólfsson  (2002) er meinfyndin og spennandi saga, sprottin beint úr íslenskum samtíma, full af skrautlegum persónum og neyðarlegum uppákomum. Hún sver sig í ætt við aðrar Reykjavíkursögur Helga Ingólfssonar sem notið hafa mikilla vinsælda  – Andsælis á auðnuhjólinu, Blá nótt fram í rauða bítið og Þægir strákar. Andsælis á auðnuhjólinu var kvikmynduð undir nafninu Jóhannes (2009) og skartar Ladda í aðalhlutverkinu.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning