Makamissir

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2022 368 5.090 kr.
spinner

Makamissir

5.090 kr.

Makamissir
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2022 368 5.090 kr.
spinner

Um bókina

Makamissir er ítarleg og vönduð bók sem veitir innsýn í það sem gerist í lífi einstaklings þegar maki hans deyr. Hún er byggð á reynslu höfunda af því að missa maka, fræðiritum, vísindarannsóknum og þekkingu sálfræðings úr meðferðarstarfi.

Bókin er gagnlegur leiðarvísir fyrir þau sem vilja kynna sér málefnið og sýna þeim sem missa maka stuðning og samkennd. Þegar dauðinn er nálægur er ekki lengur hægt að bægja frá sér þeirri staðreynd að hann er hluti af lífinu. Makamissir er álitinn vera einn þeirra atburða sem valda hvað mestri streitu í lífi fólks. Áfall tekur toll bæði af líkamlegri og andlegri heilsu. Vonin eflir kjark í andstreymi og úthald í sorg. Tilfinningar eru hvorkir réttar né rangar. Syrgjandi getur fundið fyrir tilfinningum á borð við reiði, sektarkennd og skömm. Hver eru bjargráðin í sorg? Hvað er sorgarúrvinnsla? Eru viðbrögð kynjanna ólík? Hvaða breytingar verða á stöðu, hlutverkum og samskiptum við makamissi? Verð ég einhvern tíma glöð og venjuleg aftur? Hvað er áfallaþroski?

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Makamissir”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning