Mamma, pabbi, barn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2015 348 3.390 kr.
spinner
Rafbók 2015 490 kr.
spinner

Mamma, pabbi, barn

490 kr.3.390 kr.

Mamma, pabbi, barn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2015 348 3.390 kr.
spinner
Rafbók 2015 490 kr.
spinner

Um bókina

Þriggja ára stúlka vaknar morgun einn í Stokkhólmi og er alein í íbúðinni. Hún veit að pabbi er í útlöndum en hvar eru mamma og bróðir hennar? Hún er læst inni og enginn kemur að vitja hennar. Og dagarnir líða …

Tvö mál hafna samtímis á borði lögregluforingjans Connys Sjöberg og hann þarf að takast á við þau ásamt félögum sínum á stöðinni. Sextán ára stúlka hefur fundist myrt á salerni um borð í Finnlandsferjunni og óttast er að yngri systur hennar bíði svipuð örlög. Smábarn finnst nær króknað úr kulda inni í runna, rétt hjá líki móður sinnar. Getur verið að þessi mál tengist á einhvern hátt?

Carin Gerhardsen er stærðfræðingur og starfaði við ráðgjöf þar til hún sló í gegn með Piparkökuhúsinu, fyrstu spennusögunni um félagana á Hammarbystöðinni. Bækur hennar hafa nú komið út í fjölda landa og notið mikilla vinsælda. Nanna B. Þórsdóttir þýddi.

* * * *
„Atburðarásin er spennandi fram á síðustu blaðsíðu og eins og góðum krimma sæmir eru nokkur óvænt atriði í endann … góð saga sem heldur lesandanum spenntum. Mér fannst þessi bók enn betri en Piparkökuhúsið og hlakka til að lesa næstu bók höfundar.“
Íris Davíðdsdóttir /

* * * 1/2
„Spennandi saga … að mörgu leyti spegilmynd af því sem sér svo víða stað. Því miður.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið

„Hammerby-seríubækurnar eru svalar og vel skrifaðar, fjalla um venjulegt fólk í raunverulegum háska og eru gríðarlega spennandi … óvenjulegur og áhugaverður þráður gerir þessa bók sérlega eftirminnilega.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir /

„Ein öflugasta glæpasagan í ár.“
Sydsvenskan

„Gerhardsen er góður stílisti og kann þá list að villa um fyrir lesandanum. Þetta líkar mér.“
Dast Magazine

„Það er langt síðan ég festist svona gjörsamlega í bók.“
Kristianstadsbladet

Tengdar bækur

Það sem fönnin felur
3.190 kr.
Vögguvísa
490 kr.3.490 kr.
Piparkökuhúsið
990 kr.3.100 kr.

INNskráning

Nýskráning