Það sem fönnin felur

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2020 367 3.190 kr.
spinner

Það sem fönnin felur

3.190 kr.

Það sem fönnin felur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2020 367 3.190 kr.
spinner

Um bókina

Hún sá manninn í bílflakinu djúpt ofan í gilinu í gegnum einhvers konar hitasóttaróráð. Andlitið sundurtætt og óþekkjanlegt. Glerbrotið eins og byssustingur gegnum hálsinn. Ímyndun og veruleiki urðu eitt og hún lá og bylti sér nótt eftir nótt án þess að geta sofnað.

Hvað gerðist eiginlega þetta örlagaríka síðdegi fyrir fjórum árum? Og hvað er að gerast núna? Það eina sem við vitum fyrir víst er að óhugnanleg röð ofbeldisverka virðist eiga uppruna sinn að rekja til þess sem gerðist við gilið og að það fer illa fyrir þeim sem sogast inn í atburðarásina.

Það sem fönnin felur er ólík öllu öðru sem við höfum áður lesið. Hvað er það sem við sjáum ekki? Hver segir söguna og hvers vegna? Miskunnarlaust er villt um fyrir lesandanum, allt þar til síðasti bitinn í púsluspilinu fellur á sinn stað og allt blasir við.

Höfundurinn, hin sænska Carin Gerhardsen er stærðfræðingur að mennt og nýtir hún skarphugun sína til hins ýtrasta í þessum æsispennandi krimma. Söguþráðurinn er úthugsaður, flétturnar óvæntar og persónusköpunin einstaklega lífleg, svo úr verður sálfræðitryllir af bestu gerð.

Tengdar bækur

Vögguvísa
490 kr.3.490 kr.
Mamma, pabbi, barn
490 kr.3.390 kr.
Piparkökuhúsið
990 kr.3.100 kr.

INNskráning

Nýskráning