Meistari Jakob
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2021 | 396 |
|
Meistari Jakob
3.590 kr. Original price was: 3.590 kr..990 kr.Current price is: 990 kr..
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2021 | 396 |
|
Um bókina
Á vætusömum vordegi finnst kona myrt í Norrköping eftir að hafa verið saknað í tvo sólarhringa. Líkið finnst á floti í ánni sem rennur í gegnum borgina. Tveimur dögum áður fannst annað lík í ánni, önnur kona myrt á sama hátt. Þegar þriðja konan hverfur óttast lögreglan að raðmorðingi sé kominn á kreik.
Jana Berzelius saksóknari fær málið í hendur, dyggilega studd af rannsóknarlögreglumönnunum Henrik Levin og Miu Bolander. Fljótt tengist rannsókn þeirra eldra máli ungs manns sem er vistaður á réttargeðdeild eftir að hafa myrt fjölskyldu sína. Á þeirri sömu deild dvelur líka Danilo Peña – maðurinn sem Jana Berzelius vill losna við úr lífi sínu – hvað sem það kostar.
MEISTARI JAKOB er fimmta bókin um Jönu Berzelius. Bókin hlaut Sænsku hljóðbókarverðlaunin / Storytel Awards árið 2020.



















