… og svo kom Ferguson

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2010 - 990 kr.

… og svo kom Ferguson

990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2010 - 990 kr.

Um bókina

Í ár, 2010, eru liðin rétt sextíu ár frá því fyrstu Ferguson-dráttarvélarnar komu til Íslands. Þær eru því órjúfanlegur hluti af sögu og þróun íslenskra sveita upp úr miðri síðustu öld – á tímum mestu búháttabreytinga frá því land byggðist. Ört vaxandi þjóð, sem bjó við áður óþekkta velmegun að lokinni heimsstyrjöld, krafðist stóraukinna afkasta í landbúnaði – afkasta sem ekki varð náð nema með vélvæðingu sveitanna. Þar skiptu dráttarvélarnar sköpum og að öðrum ólöstuðum var það Ferguson sem úrslitum réði.
Bjarni Guðmundsson er eins og kunnugt er hafsjór af fróðleik um þessa umbrotatíma og hefur hér unnið einstakt verk við skráningu þeirra – með Ferguson í brennipunkti. Bókin, sem er í senn aðgengileg og skemmtileg aflestrar er í stóru broti, öll litprentuð og prýdd miklum fjölda merkilegra ljósmynda víðs vegar að. Þeim sem fræðast vilja um íslenskt samfélag á 20. öld berst hér kærkomin viðbót í þá heildarmynd og bókin er fjársjóður fyrir þá sem njóta þess að rifja upp liðna tíð.

 

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning