Sæluríkið
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2023 | 286 | 7.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 3.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2023 | - | 3.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2023 | 286 | 7.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 3.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2023 | - | 3.690 kr. |
Um bókina
Sæluríkið er mögnuð og áleitin glæpasaga um brostna drauma, hugsjónir á villigötum og kalda grimmd – og fólk sem á stórra harma að hefna.
Við Hafravatn finnst ferðamaður látinn með áverka á höfði. Þegar ljóst verður að hann er í raun íslenskur og kom við sögu hjá lögreglunni þegar félagi hans hvarf nokkrum áratugum fyrr fer Konráð að grufla í samhengi hlutanna. Hans eigin fortíð blandast þar inn; umtalað morðmál frá áttunda áratugnum veldur uppnámi innan lögreglunnar og fornvinur hans, Leó, er farinn í felur. Um leið leitar tíðarandi kalda stríðsins á huga Konráðs, andrúmsloft samfélags í fjötrum sem litaðist af heift og flokkadráttum.
Arnaldur Indriðason er vinsælasti höfundur landsins, bæði heima og á erlendri grund. Sæluríkið er 27. skáldsaga hans. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir bækur sínar sem hafa verið þýddar á tugi tungumála og selst í nær tuttugu milljónum eintaka um heim allan.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 44 mínútur að lengd. Stefán Hallur Stefánsson les.
Hér má hlusta á brot úr öðrum kafla hljóðbókarinnar:
3 umsagnir um Sæluríkið
embla –
„Hér erum við með vandaða glæpasögu skrifuð af manni sem er ekki bara besti glæpasagnahöfundurinn okkar, hann er sá langbesti.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
embla –
„Mér fannst hún mjög spennandi og ég las fram á nótt … maður fórnar svefninum til að klára einn kafla í viðbót.“
Ingibjörg Iða Auðunsdóttir / Kiljan
embla –
“úthugsuð… textinn vel skrifaður og sumar mannlýsingarnar hreint afbragð.”
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið