Sannleikurinn um mál Harrys Quebert

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2014 700 1.690 kr.
spinner

Sannleikurinn um mál Harrys Quebert

1.690 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2014 700 1.690 kr.
spinner

Um bókina

Fyrsta bók Marcusar Goldman skýtur honum upp á stjörnuhimininn. En hann á í basli með næstu bók, útgefandinn er orðinn óþolinmóður og hótar málssókn. Marcus leitar ásjár hjá læriföður sínum, hinum þjóðþekkta rithöfundi Harry Quebert, sem skömmu síðar er sakaður um að hafa myrt Nolu Kellergan, unglingsstúlku sem hvarf sporlaust rúmum þrjátíu árum fyrr. Marcus hefur eigin rannsókn á þessum gamla harmleik og smám saman afhjúpast flókið net ástarsambanda, leyndarmála og lyga. Málið tekur hvað eftir annað óvænta stefnu – áður en dramatískur sannleikurinn í máli Harrys Quebert er leiddur í ljós. Sannleikurinn um mál Harrys Quebert eftir Joël Dicker (1985) er margverðlaunuð ástar- og glæpasaga. Hún kom út í Sviss og Frakklandi haustið 2012 og hefur farið sigurför um heiminn síðan.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning