Voðaverk í vesturbænum – Eddumál #6
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2024 | 300 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2024 | - | 2.990 kr. |
Voðaverk í vesturbænum – Eddumál #6
2.990 kr. – 4.290 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2024 | 300 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2024 | - | 2.990 kr. |
Um bókina
Hver ræðst á dreng á grunnskólaaldri og skilur hann eftir illa meiddan í hjólageymslu fjölbýlishúss við Tómasarhaga? Svoleiðis ráðgátu er augljóslega ekki hægt að treysta lögreglunni einni til að leysa og hin nýstofnaða Vesturbæjarvakt, með Eddu í broddi fylkingar, tekur málið upp á sína arma.
En fleiri þurfa á Eddu að halda. Stúlku í nágrenninu berast dularfullar sendingar og samband Viktors og Snorra er komið í háaloft. Það er því í nógu að snúast fyrir eiturhressan eftirlaunaþega.
Voðaverk í Vesturbænum er sjötta bókin um Eddu á Birkimelnum og glímu hennar við flókin saka- og fjölskyldumál.
Jónína Leósdóttir hefur skrifað tvær vinsælar glæpasagnaseríur, allt hörkuspennandi sögur sem kitla hláturtaugarnar og ríghalda frá upphafi til enda.
2 umsagnir um Voðaverk í vesturbænum – Eddumál #6
Fanney Benjaminsdottir –
„Ærslafull“
Gréta Sigríður Einarsdóttir / Víðsjá
Fanney Benjaminsdottir –
„Það er hreinlega eins og að bjóða gamla vinkonu velkomna í kaffi að opna Voðaverk í Vesturbænum.“
Steingerður Steinarsdóttir / Lifðu núna