Sólhvörf

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 354 3.390 kr.
spinner
Rafbók 2017 990 kr.
spinner

Sólhvörf

990 kr.3.390 kr.

Sólhvörf
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 354 3.390 kr.
spinner
Rafbók 2017 990 kr.
spinner

Um bókina

Börn hverfa án ummerkja í myrku skammdeginu og lögreglan er ráðalaus. Þegar fjórða barnið hverfur eftir að faðir þess hefur verið myrtur finnast vísbendingar sem taka af allan vafa um að yfirnáttúruleg öfl séu hér að verki. Lögreglan fær huldumiðilinn Bergrúnu Búadóttur til liðs við sig og fljótlega slæst Brá, tvítug dóttir Bergrúnar, í hópinn.

Þær mæðgur fara ásamt sérfræðingum um vættir og fjölkynngi af ýmsu tagi yfir í Hulduheim í leit að börnunum. Þar upphefst æsispennandi atburðarás með óvæntri framvindu og hrollvekjandi átökum við stórhættulegar vættir sem hafa verið fegraðar í kvæðum og sögum í Mannheimi.

Sólhvörf er grípandi glæpafantasía þar sem norræna spennusagan og íslensk þjóðtrú fléttast saman á einstakan hátt. Emil Hjörvar Petersen hefur hlotið mikið lof fyrir bækur sínar og um þessar mundir er verið að vinna að gerð sjónvarpsþátta sem byggjast á síðustu bók Emils, Víghólum.

Tengdar bækur

Nornasveimur
1.490 kr.3.490 kr.
990 kr.3.090 kr.
990 kr.2.590 kr.
990 kr.2.190 kr.

INNskráning

Nýskráning