Stormarnir og stillan
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 367 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 367 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 490 kr. |
Um bókina
Stormarnir og stillan er áhrifamikil saga um réttlæti og trú, ást og missi, manndráp og fyrirgefningu – réttar og rangar ákvarðanir, sögð og ósögð orð.
Presturinn Monica og lögmaðurinn Beate, vinkonur á miðjumaldri, þurfa báðar í störfum sínum að aðstoða fólk sem hefur lent í ógöngum. Orð þeirra og athafnir hafa áhrif; þær hafa örlög annarra í hendi sér. Á sama hátt markast líf þeirra sjálfra af gjörðum skjólstæðinga, fjölskyldu, vina, fólks á förnum vegi – hver hreyfing, hvert orð, hefur áhrif í lífi næsta manns. En hvað ræður í raun lífshlaupi fólks og gæfu? Er það samferðafólkið, tilviljanir, Guð? Eða er hver sinnar gæfu smiður?
Skáldsögur Anne-Cathrine Riebnitzsky njóta mikilla vinsælda í Danmörku og hafa hlotið ýmsar viðurkenningar. Stormarnir og stillan er önnur bók hennar sem kemur út á íslensku, sú fyrri var verðlaunasagan Krakkaskrattar.
Ísak Harðarson þýddi.
4 umsagnir um Stormarnir og stillan
Árni Þór –
„Áhrifamikil bók … Hér tengjast margar sögur og mynda frábæra heild.“
Steingerður Steinarsdóttir / Vikan
Árni Þór –
★ ★ ★ ★ ★
„Flókin og lifandi, létt og leikandi. Notaleg skáldsaga með boðskap. Sérkennilega hæglátur bókmenntalegur hvirfilbylur.“
Berlingske Tidende
Árni Þór –
★ ★ ★ ★ ★ ★
„Sagan býður bæði upp á íhugun og spennu og er skrifuð af frábærri leikni.“
Femina
Árni Þór –
★ ★ ★ ★ ★ ★
„… skáldsaga sem glímir við grundvallarspurningar tilverunnar á uppbyggilegan og snjallan hátt … gagntekur lesandann gersamlega … fær hæstu einkunn.“
Jyllands-Posten