Stutt Biblía fyrir þig

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 304 8.490 kr.
✓
spinner

Stutt Biblía fyrir þig

8.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 304 8.490 kr.
✓
spinner

Um bókina

Í þessari níundu bók sinni rekur Þórhallur Heimisson sögu, þróun og samsetningu Biblíunnar og texta hennar, allt frá Egyptalandi hinu forna til Biblíuþýðinga dagsins í dag. Þetta er spennandi og stórbrotin saga um mikilvæga sögulega þætti sem snerta alla. Hér er fjallað um Biblíuna sem heild og hvernig hún varð til.

Í þessari níundu bók sinni rekur Þórhallur Heimisson sögu, þróun og samsetningu Biblíunnar og texta hennar, allt frá Egyptalandi hinu forna og til Biblíuþýðinga dagsins í dag. Þetta er spennandi og stórbrotin saga um mikilvæga sögulega þætti sem snerta alla.

Hér er fjallað á aðgengilegan hátt um Biblíuna sem heild og hvernig hún varð til. Samtímis er sérhvert rit hennar skýrt og sett í sögulegt samhengi. Þannig er tekin er fyrir þróun Gamla testamentisins, Apókrýfu ritanna og Nýja testamentisins á mannlegu máli sem allir skilja.

Biblían er grundvallarriti kristinnar trúar og gyðingdóms. Margar sögur hennar er líka að finna í Kóraninum, helsta trúarriti múslíma, þótt sagan sé þar ekki sögð á sama hátt, Hún er mest útgefna bók sögunnar. Hvernig sem menn líta á Biblíuna hefur hún haft ótrúleg áhrif á sögu okkar, menningu og samfélag. Sá sem vill vera læs á fortíð sína og skilja nútímann verður þess vegna að gera sér far um að skilja heim Biblíunnar.

Þórhallur opnar hér með einstökum hætti þennan heim fyrir lesendum. Hann er löngu landsþekktur fyrir færni sína til að gæða fortíðina lífi. Hér tekst hann á við sögu sem mótaði heiminn og hefur enn áhrif á líf okkar.

Þórhallur Heimisson hefur lengi starfað sem prestur í íslensku og sænsku þjóðkirkjunni og ferðast vítt og breytt um heiminn sem leiðsögumaður þar sem heimsóttar hafa verið höfuðstöðvar og söguslóðir trúarheima. Hann hefur þannig margsinnis leitt hópa á söguslóðir Biblíunnar og þekkir þær flestum Íslendingum betur.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Stutt Biblía fyrir þig”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning