Tímarit Máls og menningar 2026 3. hefti

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2026 126 3.690 kr.
✓
spinner

Tímarit Máls og menningar 2026 3. hefti

3.690 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2026 126 3.690 kr.
✓
spinner

Um bókina

Leikritun er í fókus í þessu hefti Tímaritsins og er það viðeigandi þegar leik-hús landsins eru að hefja göngu sína eftir sumarleyfi og spenntir leikhúsgestir keppast við að raða sínum óskaverkum saman á áskriftarkort. Eftir því sem líður á veturinn saxast á kortin en upplifunin byggist upp á móti og sumar sýningar sitja ljóslifandi í huga þess sem á horfði áratugum síðar. Það sjáum við vel í grein Sveins Einarssonar um íslenska leikritun á seinni hluta síðustu aldar. Katla Ársælsdóttir tekur svo við keflinu og beinir sjónum að þremur íslenskum leikritum frá þessari öld og loks rýnir Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson í umtalaðasta verk síðasta leikárs, Óresteiu eftir Benedict Andrews og Æskilos í leikstjórn þess fyrrnefnda. Að öðru leyti kemur efni heftisins úr öllum áttum. Við sögu koma Tarsan apabróðir og skapari hans, Edgar Rice Burroughs, húsagerðarlist í skáldsögum Halldórs Laxness, Viktor Frankenstein og skrímsli hans, Albert Camus, silungsveiði, hjónaferð til Tene og margt margt fleira. Við óskum lesendum góðrar skemmtunar, bæði við lestur heftisins og í menningarveislunni í vetur!

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Tímarit Máls og menningar 2026 3. hefti”

Tengdar bækur

Utangardsborn_1500x1500
990 kr. – 1.290 kr.
3.290 kr.
2.990 kr. – 4.490 kr.
3.990 kr. – 4.190 kr.
2.990 kr. – 4.290 kr.
8.690 kr.
3.490 kr. – 4.590 kr.
3.390 kr.
4.090 kr.
1.890 kr.
3.790 kr.
1.890 kr.
1.890 kr.
1.990 kr. – 4.990 kr.
990 kr. – 1.990 kr.
2.090 kr.
4.290 kr. – 4.690 kr.

INNskráning

Nýskráning