Umrót

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 224 4.490 kr.
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 224 4.490 kr.
spinner

Um bókina

Þegar Rakel missir stjórnina á vel skipulögðu lífi sínu ákveður hún að fara í sjálfskipaða útlegð í Andalúsíu. Þar þarf hún að horfast í augu við sjálfa sig og drauga fortíðar sem hún hefur grafið djúpt. Rakel er áttavillt en smátt og smátt lærir hún að feta þröngar götur á framandi slóðum. Stærsta áskorun Rakelar er þó að kynnast sjálfri sér.

Hver er hún þegar hún er ekki lengur farsæll forstjóri? Á sólbökuðum strætum Granada hefur Rakel nægan tíma til að hugsa. Hafði skylduræknin verið að drepa hana? Gæti umrótið verið lán í óláni?

Umrót er saga konu sem stendur á tímamótum og þarf að líta um farinn veg og sættast við fortíðina til að geta lifað lífinu til fulls.

Umrót er fjórða skáldsaga Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur en fyrri bækur hennar hafa fengið góðar viðtökur gagnrýnenda og lesenda. Frásagnarstíll Árelíu er líflegur og skemmtilegur og hrífur lesendur með sér á nýjar slóðir.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Umrót”

Tengdar bækur

2.090 kr.
4.590 kr.
2.390 kr.
4.390 kr.
4.590 kr.
2.990 kr.
2.990 kr.4.290 kr.
4.090 kr.

INNskráning

Nýskráning