Veiðistöng handa afa mínum

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 166 4.390 kr.
spinner

Veiðistöng handa afa mínum

4.390 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 166 4.390 kr.
spinner

Um bókina

Veiðistöng handa afa mínum geymir sex meistaralega samdar sögur eftir kínverska Nóbelsskáldið Gao Xingjian.

Sögurnar fjalla um hverfulleika ástar og lífs, vonir og ótta en ekki síst ásækni minninga, þar sem fortíðin verður ekki umflúin.

Upplifunum og augnablikum í lífi einstaklinga er stillt upp andspænis stærri veruleika. Sögurnar eru hlaðnar nákvæmum smáatriðum og fíngerðum vísunum svo að unun er að lesa.

Í þessum sex sögum er brugðið upp ljóðrænum myndum af mótum minninga og veruleika þar sem hið ósagða er fangað af listfengi skáldsins og innsæi listmálarans.

Gyrðir Elíasson íslenskaði.

Gao Xingjian, rithöfundur, leikskáld, gagnrýnandi og listmálari, hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2000. Hann fæddist í Kína árið 1940. Í menningarbyltingu Maós á sínum tíma neyddist hann til að brenna verk sín til að forðast ofsóknir yfirvalda. Síðar voru verk hans bönnuð í Kína. Árið 1987 yfirgaf hann heimaland sitt og settist að í Frakklandi. Hann er nú franskur ríkisborgari.

Gao lítur ekki á sig sem pólitískan flóttamann eða rödd frelsileitandi Kínverja. Hann sé einfaldlega listamaður, einstaklingur sem skrifar bókmenntir fyrir aðra einstaklinga án þess að þjóna nokkrum öðrum tilgangi en að leita sannleika í heimi mannsandans.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Veiðistöng handa afa mínum”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning