Verndargripur

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 187 3.090 kr.
spinner

Verndargripur

3.090 kr.

Verndargripur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 187 3.090 kr.
spinner

Um bókina

„Þetta verður hryllingssaga. Þetta verður glæpasaga, reyfari og frásögn af hryllingi.“

Auxilio Lacouture er stödd á kvennasalerninu í Mexíkóháskóla þegar herinn ræðst til atlögu í september árið 1968. Hún ákveður að fela sig á meðan kennarar og stúdentar eru handteknir og hernámið stendur yfir. Í tólf daga berst Auxilio við hungrið og minningarnar sem teygja sig jafnvel inn í framtíðina; hún sér hryllinginn sem bíður eftir að eiga sér stað: Blóðbaðið í Tlatelolco.

Verndargripur er myrkur en ástríðufullur lofsöngur til ungdómsins, ljóðlistarinnar og Mexíkóborgar.

Roberto Bolaño (1953-2003) er einn áhrifamesti höfundur sem komið hefur frá Rómönsku-Ameríku á undanförnum áratugum. Hann fæddist í Chile en bjó löngum í Mexíkó og á Spáni. Hann var ljóðskáld að upplagi en ritaði á síðustu árum ævi sinnar skáldsögur í kapphlaupi við dauðann. Hann lést aðeins fimmtugur að aldri úr lifrarbilun.

Ófeigur Sigurðsson þýddi.

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning