Talnapúkinn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2002 - 1.460 kr.

Talnapúkinn

1.460 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2002 - 1.460 kr.

Um bókina

Í Talnapúkanum er fléttað saman skemmtilegri sögu með fallegum boðskap og talnakennslu. Auk þess eru kynnt til sögunnar ýmis lönd og einkenni þeirra. Þá er tæpt á hugtökum í reikningi eins og plús og mínus auk þess sem aftast í bókinni má finna ýmsar skemmtilegar spurningar og þrautir sem börnin geta spreytt sig á. Til dæmis hefur Talnapúkinn falið sig á nokkrum síðum bókarinnar og gaman er að reyna að finna hann.


Talnapúkinn er lítil, skemmtileg vera sem býr í helli í miðju jarðar. Frá hellinum liggja mörg göng, ein að hverju landi. Talnapúkinn veit ekkert skemmtilegra en að telja en þar sem hann getur ekki talið nema upp að níu þá málar hann aðra stóru tána á sér svarta svo að hún sjáist ekki. Loks ákveður Talnapúkinn að leggja af stað út í hinn stóra heim og læra að þekkja fleiri tölur. Á ferðalaginu kynnist hann fullt af sniðugum persónum. Og viti menn! Hann lærir að telja.


Teikningar gerði Ómar Örn Hauksson

Tengdar bækur

3.690 kr.
2.490 kr.
3.690 kr.
4.990 kr.
4.490 kr.
3.190 kr.
4.090 kr.
3.190 kr.
3.590 kr.4.990 kr.

INNskráning

Nýskráning