Heimilishjálpin: Leyndarmálið

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 320 3.590 kr.
spinner

Heimilishjálpin: Leyndarmálið

3.590 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 320 3.590 kr.
spinner

Um bókina

 „Ekki fara inn í gestaherbergið.“ Skuggi fellur á andlit Douglas Garrick þegar hann snertir hurðina með fingurgómunum. „Konan mín… hún er mjög veik.“ Þegar hann heldur áfram að sýna mér þakíbúðina þeirra hef ég hræðilega tilfinningu fyrir konunni á bak við luktar dyrnar. En ég get ekki átt á hættu að missa þetta starf – ekki ef ég vil halda myrkasta leyndarmálinu mínu öruggu … 

Það er erfitt að finna vinnuveitanda sem spyr ekki of margra spurninga um fortíð mína. Svo ég þakka mínu sæla fyrir að Garrick-hjónin hafa ráðið mig í vinnu við að þrífa glæsilegu þakíbúðina sína og útbúa máltíðir handa þeim. Ég get unnið hérna um tíma, verið róleg þar til ég fæ það sem ég vil.

Þetta er næstum því fullkomið. En ég hef enn ekki hitt frú Garrick, eða séð inni í gestaherberginu. Ég er viss um að ég heyri hana gráta. Ég tek eftir blóðblettum í kraganum á hvíta náttsloppnum hennar þegar ég þvæ þvottinn. Einn daginn get ég ekki annað en bankað á dyrnar. Þegar þær opnast og ég sé hvað herbergið geymir breytist allt …

Ég lofa sjálfri mér. Ég hef gert þetta áður. Ég get verndað frú Garrick á meðan ég geymi mín eigin leyndarmál.

Douglas Garrick hefur gengið of langt. Hann fær að borga fyrir hegðun sína. Þetta er einfaldlega spurning um hversu langt ég er tilbúin að ganga … 

Þessi bók er alger sprengja! Átakanlega snúið (en sjálfstætt) framhald af alþjóðlegu metsölubókinni Heimilishjálpin, sem kom áður út undir nafninu Undir yfirborðinu. Heimilishjálpin: Leyndarmálið mun halda þér á hlaupum í gegnum blaðsíðurnar langt fram á nótt.

Bókin kom áður út undir nafninu Það sem þernan sér.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Heimilishjálpin: Leyndarmálið”

Tengdar bækur

3.590 kr.
4.490 kr.
það sem þrennan sér
3.890 kr.
Undir yfirborðinu
3.890 kr.
4.590 kr.
990 kr.1.990 kr.
3.690 kr.7.290 kr.
2.190 kr.
5.790 kr.
2.790 kr.
4.390 kr.
4.090 kr.4.290 kr.

INNskráning

Nýskráning