Heimilishjálpin sér allt (3)

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 368 4.490 kr.
spinner

Heimilishjálpin sér allt (3)

4.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 368 4.490 kr.
spinner

Um bókina

Þriðji hörkuspennandi tryllirinn um Heimilishjálpina.

„Þið hljótið að vera nýju nágrannarnir okkar!“ hrópar frú Lowell og veifar yfir hvíta grindverkið. Ég gríp um hönd dóttur minnar og brosi til baka, en um leið og frú Lowell sér eiginmann minn verður hún skrítin á svipinn. Á þeirri stundu gef ég sjálfri mér loforð. Loksins eigum við fallegt heimili. Fortíðin er langt, langt að baki. Ég og maðurinn minn söfnuðum í mörg ár til að geta gefið börnunum okkar það líf sem þau eiga skilið. Og ég mun gera allt til að halda því þannig …

Þótt ég sé tortryggin gagnvart Lowell-hjónunum er kvöldverðarboð hjá þeim tækifæri til að kynnast fólki. Heimilishjálpin þeirra opnar dyrnar, hún er með hvíta svuntu og hárið bundið í þéttan hnút. Ég þekki vel hvernig er að vera í hennar sporum. En kalt augnaráð hennar veldur mér óróleika …

Þerna Lowell-hjónanna er ekki það eina undarlega við götuna okkar. Mér finnst ég sjá skuggalega veru fylgjast með okkur. Eiginmaður minn laumast út seint á kvöldin. Og þegar ég hitti konuna sem býr beint á móti fara orð hennar um mig eins og kuldahrollur: Passaðu þig á nágrönnunum.

Gerði ég hræðileg mistök með því að flytja fjölskylduna hingað? Ég hélt að ég hefði skilið myrkustu leyndarmálin mín eftir. Getur þessi rólega úthverfagata verið hættulegasti staðurinn af þeim öllum?

Frá metsöluhöfundinum Freidu McFadden kemur næsta bók í hinni ótrúlega snúnu, spennuþrungnu og alþjóðlega vinsælu Heimilishjálpar-seríu. Hægt er að njóta bókarinnar sjálfstætt – en það er ekki hægt að leggja hana frá sér fyrr en öll kurl eru komin til grafar.

Þýðing Ingunn Snædal

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Heimilishjálpin sér allt (3)”

Tengdar bækur

3.590 kr.
3.590 kr.
það sem þrennan sér
3.890 kr.
Undir yfirborðinu
3.890 kr.
Pantaljón
2.090 kr.
Mammútaþjóðin
690 kr.
4.090 kr.
3.890 kr.4.290 kr.
3.190 kr.
4.490 kr.
3.890 kr.
4.390 kr.

INNskráning

Nýskráning