Heimilishjálpin

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 336 3.590 kr.
spinner

Heimilishjálpin

3.590 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 336 3.590 kr.
spinner

Um bókina

„Velkomin í fjölskylduna,“ segir Nina Winchester þegar ég tek í vel snyrta hönd hennar. Ég brosi kurteislega og lít í kringum mig í ríkmannlegu anddyrinu. Starfið hér er síðasta tækifæri mitt til að hefja nýtt líf. Ég get þóst vera sú sem ég vil vera. Fljótlega kemur þó í ljós að leyndarmál Winchester-fjölskyldunnar eru mun ógnvænlegri en mín … 

Á hverjum degi þríf ég heimili Winchester-hjónanna hátt og lágt. Ég sæki dóttur þeirra í skólann og elda ljúffengan mat handa fjölskyldunni áður en ég fer upp og borða alein í litla herberginu mínu.

Ég reyni að láta sem ég sjái ekki að Nina gengur viljandi illa um. Að hún lýgur að mér um barnið sitt. Að Andrew, eiginmaður hennar, virðist bugaðri með hverjum deginum. Þegar ég horfi í fallegu brúnu augun hans, full af sársauka, hugsa ég um hvernig það væri að lifa því lífi sem Nina á. Með ógrynni af fötum, flottum bíl, fullkomnum eiginmanni.

Ég fer aðeins einu sinni í hvítan kjól af Ninu. Bara til að sjá hvernig tilfinningin er. Hún kemst þó fljótt að því … og þegar ég átta mig á því að herbergisdyrnar mínar læsast aðeins að utanverðu er það um seinan. 

Ég hugga mig við það að Winchester-fólkið veit ekki hver ég er í raun og veru. Þau vita ekki hvað ég er fær um að gera … 

Heimilishjálpin kom út áður undir nafninu Undir yfirborðinu.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Heimilishjálpin”

Tengdar bækur

3.590 kr.
4.490 kr.
það sem þrennan sér
3.890 kr.
Undir yfirborðinu
3.890 kr.

INNskráning

Nýskráning