Í návígi við fólkið á jörðinni

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 208 3.690 kr.

Í návígi við fólkið á jörðinni

3.690 kr.

Í návígi
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 208 3.690 kr.

Um bókina

Í návígi við fólkið á jörðinni segir frá venjulegu fólki í óvenjulegum og stundum ótrúlegum aðstæðum. Bændum í Kína og Bangladess sem berjast við náttúruöflin, heiðarlegu fólki sem tekst á við afleiðingar styrjalda, bláfátækum viðskiptafrömuðum í Afríku, kaupmönnum á iðandi strætum stórborga á Indlandsskaga, dugmiklum konum og vingjarnlegum lögregluforingjum í gömlu Sovétríkjunum og fólki sem elst upp við múra hvort sem þeir eru manngerðir eða huglægir. Bókin segir líka frá fólki sem hefur óverjandi ógnarverk á samviskunni. Fólkið sem Þórir kynnist hefur ótrúlegan styrk þrátt fyrir hrikalegar aðstæður. Hann hittir fólk sem mætir örlögum sínum af jafnaðargeði, berst gegn ofurvaldinu og er staðráðið í að fara með sigur af hólmi. 

 

Þórir Guðmundsson hefur brennandi áhuga á fólki. Hann hefur starfað víða um heim við hjálparstörf á vegum Rauða krossins, oft á átaka- og hamfarasvæðum. Hann hefur einnig sem fréttamaður flakkað heimshorna á milli í áratugi og flutt fregnir af alþjóðamálum. Á bak við fréttirnar er fólk og hjálparstarf snýst um að hjálpa fólki. Við störf sín hefur Þórir kynnst fólki bæði í höllum og fátækrahverfum, sem býr við velmegun og er við hungurmörk. Í þessari bók segir hann eftirminnilegar sögur þessa fólks, fólksins á jörðinni.

Tengdar bækur

Original price was: 1.890 kr..Current price is: 1.607 kr..
4.390 kr.
3.590 kr.
Original price was: 2.690 kr..Current price is: 2.287 kr..
Original price was: 4.090 kr..Current price is: 3.477 kr..
3.190 kr.
6.390 kr.
Original price was: 4.490 kr..Current price is: 3.817 kr..
5.890 kr.
3.590 kr.
4.190 kr. – 4.990 kr.
3.190 kr.
Original price was: 3.590 kr..Current price is: 3.052 kr..
Original price was: 4.790 kr..Current price is: 4.072 kr..
4.090 kr.
3.790 kr.

INNskráning

Nýskráning