Með höppum og glöppum – spjallbók
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 156 | 4.090 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 156 | 4.090 kr. |
Um bókina
Þetta er síðasta spjallbók höfundar að eigin sögn. Hinar fyrri eru Mitt litla leiksvið (2017), Lítið óvísindalegt kver um leiklist (2019), Þú ert mitt sólskin (2024) og Í belg og biðu (2025). Hér er sem áður allt í belg og biðu og ekkert gert til að setja textann á bása eða mjólka með vélum.
Tilgangurinn er vitaskuld afþreying en ekki sakar ef lesendur finna einhverjar góðar meiningar á bak við.
Til eru barnabækur, unglingabækur og venjulegar bækur, en höfundur hefur ekki heyrt getið um eldrafólksbækur; kannski mætti, eftir undirtektum að dæma, kalla þessar spjallbækur svo. Þakkir frá bóka- og ferðaklúbbum, hjúkrunarheimilum, ýmsum góðgerðafélögum og svo framvegis benda til þess. En vonandi á kverið erindi við öll aldursskeið, þó að höfundur sé ekki kornungur.






















Umsagnir
Engar umsagnir komnar