Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Sögur og ljóð
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 260 | 4.490 kr. | ||
| Hljóðbók - streymi | 2020 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
| Kilja | 2009 | 2.290 kr. | |||
| Rafbók | 2017 | 990 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 260 | 4.490 kr. | ||
| Hljóðbók - streymi | 2020 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
| Kilja | 2009 | 2.290 kr. | |||
| Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Magnaðar sögur, ljóð og myndir – ferskar og ögrandi, þrungnar heitum tilfinningum. Íslensk nútímaklassík.
Ásta Sigurðardóttir (1930–1971) rótaði rækilega upp í bæjartjörn Reykjavíkur þegar fyrsta smásagan hennar, Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns, birtist árið 1951. Á næstu árum vakti hver sagan af annarri mikla athygli og þegar sagnasafn nefnt eftir fyrstu sögunni kom út 1961 varð það sígilt um leið. Þær tíu sögur sem þar birtust, ásamt meðfylgjandi dúkristum höfundarins, eru meginuppistaða þessarar bókar en seinni hluti hennar geymir sögur sem Ásta skrifaði seinasta áratuginn sem hún lifði og ljóð frá öllum ferli hennar.
Sögur og ljóð var upphaflega gefin út 1985 og hefur alla tíð notið mikillar hylli. Þetta er þriðja útgáfa bókarinnar.
Kolbeinn Þorsteinsson og Silja Aðalsteinsdóttir skrifa eftirmála.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er um 6 klukkustundir og 41 mínúta að lengd. Elín Gunnarsdóttir les.














4 umsagnir um Sögur og ljóð
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Fyrsta sagan eftir kvenrithöfund sem hefur það að hugsjón að ljóstra upp um karlrembuháttinn í íslensku samfélagi.“
Steingrímur St. Th. Sigurðsson / TMM
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Einlægnin slík að lesendur trúðu (og trúa) því að um lifaðan veruleika væri að ræða.“
Matthías Viðar Sæmundsson / TMM
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Þetta er náttúrulega bara klassík … sögur sem eiga sér engan líka í íslenskum bókmenntum á síðustu öld.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Stórkostleg skáldkona – það er dýrmætt að fá þessar sögur. … Fyrir ungt fólk er þetta uppljómun.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan