Kompa

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2016 168 4.490 kr.
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2016 168 4.490 kr.
spinner

Um bókina

Fræðimaður, ung kona, verður fyrir smávægilegri truflun inni á handritasafni við rannsókn á 365 ára gamalli dagbók. Afleiðingarnar eru afdrifaríkar en koma þó ekki í ljós fyrir en sex árum síðar þegar konan áttar sig á að rannsóknartilgáta hennar hefur í öll þessi ár verið byggð á röngum forsendum, og að ritgerðin, heilar 600 síður, er að öllum líkindum þvættingur frá upphafi til enda.

Í örvæntingu sinni grípur hún til þess eina ráðs sem virðist geta bjargað henni úr skelfilegum aðstæðum, en verknaðurinn eykur bara á hremmingar hennar og áfallið í kjölfar þessa alls verður til þess að gömul veikindi taka sig upp. Buguð og í fræðilegri sjálfheldu frestar hún námslokum og fylgir eiginmanni sínum heim til Íslands.

Þar burðast hún með leyndarmál sitt og laskaða sjálfsmynd gagnvart fjölskyldu og vinum, og tekst á við afleiðingar veikinda sinna, ofskynjanir, sem virðast þó að lokum ætla að opna henni leið út úr ógöngunum.

Kompa er skáldsaga um uppruna sögulegra heimilda og tilviljunarkennda varðveislu þeirra.

Sigrún Pálsdóttir lauk doktorsprófi í sagnfræði frá University of Oxford árið 2001 og hefur frá námslokum einkum unnið við ritstjórnarstörf; frá árinu 2008 sem ritstjóri Sögu, tímarits Sögufélags. Fyrri bækur hennar eru Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar (2010) og Sigrún og Friðgeir – ferðasaga (2013)

Tengdar bækur

2.990 kr.4.290 kr.
990 kr.3.690 kr.
690 kr.3.990 kr.
Delluferðin
690 kr.1.490 kr.
Þóra biskups
1.290 kr.3.100 kr.
Sigrún og Friðgeir eftir Sigrúnu Pálsdóttur
490 kr.990 kr.
Original price was: 4.590 kr..Current price is: 1.999 kr..
Original price was: 3.990 kr..Current price is: 1.980 kr..
3.990 kr.
3.890 kr.
Original price was: 3.190 kr..Current price is: 1.990 kr..
Original price was: 3.690 kr..Current price is: 1.990 kr..
Original price was: 3.290 kr..Current price is: 2.290 kr..
4.290 kr.
Original price was: 4.090 kr..Current price is: 2.499 kr..
Original price was: 2.650 kr..Current price is: 2.290 kr..

INNskráning

Nýskráning