Dyngja
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 3.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Innbundin | 2021 | 227 | 3.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 3.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Innbundin | 2021 | 227 | 3.990 kr. |
Um bókina
Hvað leynist bak við bláan einkennisbúning og silkislæðu, sólbrúna húð og rauðlakkaðar neglur? Dauð rödd söguhetjunnar býður þér að kaupa tollfrjálsan varning og þegar þú afþakkar boðið heldur hún áfram ganginn með þennan klunnalega en vellyktandi vagn á undan sér. Hægt í átt að ljósinu og endalokum þeirrar undraverðu sögu sem nefnd hefur verið Dyngja. Hún hófst um miðbik 20. aldar á litlum bæ við rætur Ódáðahrauns og þaðan barst hún lengra inn í landið; frá hálendi Íslands út í geim og að lokum til tunglsins.
Sigrún Pálsdóttir lauk doktorsprófi í sagnfræði frá University of Oxford árið 2001 og hefur frá námslokum unnið við ýmsar rannsóknir og ritstjórn. Fyrri bækur hennar eru Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar (2010), Sigrún og Friðgeir. Ferðasaga (2013), Kompa (2016) og Delluferðin (2019). Bækurnar hafa verið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna, Menningarverðlauna DV og Viðurkenningar Hagþenkis. Delluferðin hlaut Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins 2021.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Esther Thalia Casey les.
Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:
5 umsagnir um Dyngja
embla –
„Sigrún er frábær í sagnfræðinni og hún er greinilega líka frábær skáldsagnahöfundur. Hér heldur mikil hæfileikamanneskja á penna, nánast jafnvíg á bæði form.“
Elín Hirst / Fréttablaðið
embla –
„Dyngja eftir Sigrúnu Pálsdóttur segir sögu bóndadóttur sem fædd er um miðbik 20. aldar. Theodóra/Teddý er gædd óvenjulegri stærðfræðigáfu. Heimur tækni og vísinda er karlaheimur, þar og þá, og konur eru ekki velkomnar í hann. Greiningarhæfileiki Teddýjar gerir henni að lokum kleift að snúa vonlausri stöðu sér í hag og tefla til sigurs. Dyngja er lágmælt saga með magnaðan undirtexta sem höfðar sterkt til réttlætiskenndar lesenda.“
Umsögn dómnefndar Fjöruverðlaunanna
embla –
„Heillandi frásögn af skemmtilega flóknum kvenkarakter.“
Gréta Sigríður Einarsdóttir / Viðsjá
embla –
„(S)ögusviðið er horfið Ísland sem Sigrún lýsir meistaralega. Já og Teddý er frábær persóna“
Þorgeir Tryggvason
embla –
„Dyngja er raunsæ bók með ævintýralegum blæ. Sannfærandi persónusköpun bókarinnar vekur sterka samkennd, svo sterka að bókin er ein af þeim sem hverfa ekki fljótt úr huga lesandans heldur sitja eftir með honum og fá hann til þess að velta efni þeirra áfram fyrir sér.“
Ragnhildur Þrastardóttir / Morgunblaðið