Að kasta flugu í straumvatn er að tala við Guð

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 2.090 kr.
spinner

Að kasta flugu í straumvatn er að tala við Guð

2.090 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 2.090 kr.
spinner

Um bókina

Sögur af mönnum sem veiða laxa og löxum sem frelsa konur.

Bókin Að kasta flugu í straumvatn er að tala við Guð eftir Bubba Morthens segir sögur af mönnum og löxum; fallegar, ljóðrænar, fyndnar og einstöku sinnum naprar – sögur af veiðum, veiðiferðum og átökum við hina ástríðufullu og marglyndu veiðigyðju.

Í bókinni stíga fram margar og ólíkar persónur – næmir og fróðir veiðimenn og leiðsögumenn, vanir menn og óvanir, veiðifíklar sem leggja allt í sölurnar, fyllibyttur og banvænar ljóskur sem borða strákahjörtu í morgunmat, hrútfúll leigubílstjóri og einn sem lifði af útrýmingarbúðir og óralangt ferðalag fótgangandi yfir hálfa Evrópu í von um að verða einhvern tíma svo ríkur að hann gæti veitt lax.

Og svo eru það laxarnir, stórir og smáir, auðveiddir eða illskeyttir – sumir með alla orku heimsins og víðáttu hafsins ólgandi í blóðinu, aðrir stríðnispúkar sem hafa yndi af að leiða laxveiðimenn í ógöngur. Allir eiga þeir sína fulltrúa sem eru leiddir hér fram á sviðið til átaka við veiðimenn – og hvor veiðir hvorn?

Tengdar bækur

3.890 kr.
Velkomin
3.390 kr.
Rof - Bubbi Morthens
990 kr.3.390 kr.
Hreistur
990 kr.3.390 kr.
Öskraðu gat á myrkrið eftir Bubba Morthens
3.690 kr.
Áin
2.590 kr.
1.690 kr.

INNskráning

Nýskráning