Ballaðan um Bubba Morthens

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2006 2.065 kr.
spinner

Ballaðan um Bubba Morthens

2.065 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2006 2.065 kr.
spinner

Um bókina


Þetta er saga manns sem er hvorki hér né þar heldur er bara með gítar og rödd við endann á lungum sem dragast saman og tútna út á víxl af reyk og slori og væntingum og vonum og draumum sem varpa svörtu klæði yfir hausinn á manni og sumir myndu sjálfsagt misskilja sem martraðir.

Þetta er Ballaðan um Bubba Morthens eftir Jón Atla Jónasson sem sýnir okkur myndir af dreng sem er að verða maður, manni með nefið fullt af kóki að meika það í útlöndum, hljómsveit sem langar að brjótast út úr bílskúrnum og skjótast upp til stjarnanna.

Þetta er líka mynd af manni sem lítur aftur á drauma sína og martraðir en horfir jafnframt ástfanginn fram á veginn í nýju húsi á nýjum stað.

Jón Atli Jónasson hefur gefið út skáldsögu, smásögur og skrifað kvikmyndahandrit. Hann er ekki síður þekktur fyrir leikrit sín en hann var valinn leikskáld ársins árið 2004 fyrir leikrit sitt Brim.

Bubbi hefur verið einn vinsælasti hljómlistamaður landsins um árabil.

Ballaðan um Bubba Morthens lætur engan ósnortinn; svæsin og harðneskjuleg, draumkennd og heillandi.

[Domar]

„ … læsileg og skemmtileg bók.“
Silja Aðalsteinsdóttir / tmm.is


„Jón Atli … skilar afbragðsgóðri bók, einkum og sér í lagi vegna ferskra efnistaka … að sjá [staðalímyndirnar] settar fram með svo óvenjulegu móti gerir lesninguna bráðskemmtilega.“

Óttar M. Norðfjörð / DV


„Mögnuð.“
Jakob Bjarnar / Fréttablaðið

[/Domar]

„Jóni Atla tekst merkilega vel að draga upp ferska mynd af þessum manni … dýpkar þá mynd sem við höfum … [textinn er] lipur, lifandi og flæðir fram af þeim krafti sem einkennir viðfangsefnið … býsna mögnuð.“

Þórarinn Þórarinsson / Fréttablaðið


Tengdar bækur

3.690 kr.4.690 kr.
3.690 kr.3.990 kr.
3.890 kr.
Velkomin
3.390 kr.
Rof - Bubbi Morthens
990 kr.3.390 kr.
Hreistur
990 kr.3.390 kr.
Öskraðu gat á myrkrið eftir Bubba Morthens
3.690 kr.
Áin
2.590 kr.
1.690 kr.
2.090 kr.

INNskráning

Nýskráning