Dauðinn er bara myrkur

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2026 258 7.890 kr.
✓
spinner
Rafbók 2026 - 4.290 kr.
✓
spinner

Dauðinn er bara myrkur

4.290 kr. – 7.890 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2026 258 7.890 kr.
✓
spinner
Rafbók 2026 - 4.290 kr.
✓
spinner

Um bókina

Odd Strange hefst við í gömlu hjólhýsi í nágrenni Malaga og hefur lifibrauð sitt af einkaspæjarastörfum. Hann á sér óvenjulega sögu: ólst upp í Reykjavík hjá afar sérkennilegum foreldrum, var júdókappi og starfaði um tíma í lögreglunni í Osló.

Dag einn bankar ung kona upp á hjá Odd og biður hann að finna týnda vinkonu sína. Leitin að henni rifjar upp fyrir honum hryllilegt mál sem snerist um norskan fjöldamorðingja sem aldrei náðist, rannsókn sem varð Odd gríðarlega dýrkeypt. Getur verið að sami morðingi sé aftur kominn á kreik?

Magnað andrúmsloft einkennir þessa ískyggilegu og óhefðbundnu glæpasögu sem grípur lesandann fantatökum strax á fyrstu blaðsíðu.

Jón Atli Jónasson er margverðlaunaður fyrir leikverk sín, sjónvarps- og kvikmyndahandrit. Nýlegar glæpasögur hans, Brotin og Eitur, fengu báðar afbragðsdóma.

1 umsögn um Dauðinn er bara myrkur

Skrifa umsögn

Tengdar bækur

3.690 kr. – 4.690 kr.
3.690 kr. – 3.990 kr.

INNskráning

Nýskráning