Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Alltaf sama sagan
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Innbundin | 2009 |
|
|||
| Rafbók | 2016 | 159 | 990 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Innbundin | 2009 |
|
|||
| Rafbók | 2016 | 159 | 990 kr. |
Um bókina
Alltaf sama sagan geymir ellefu sögur um fólk og margvíslegar furður í fortíð, nútíð og framtíð. Skáldmæltur hundur kemur við sögu, eldforn Saab-bifreið, dularfullur kauði og glataður hamar; bylting verður í íþróttalífi landsmanna, sagt er af draugagangi og mannraunum og eins er spurt: Hvað ef …?
Þórarinn Eldjárn er sannur meistari smásmugunnar og leikur sér hér með persónur, hugmyndir, orð og ekki síst sjálfa lesendurna: Eða hvað er maðurinn að pæla – er þetta kannski alltaf sama sagan?
























3 umsagnir um Alltaf sama sagan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Nýja smásagnasafnið hans Þórarins er alveg hreint sultufínt. Stíllinn, orðavalið, hugmyndirnar. Maður, maður. Allt er þetta eins og það á að vera.“
Björn Þór Sigbjörnsson / Fréttablaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Þórarinn er frábær stílisti og launfyndinn … skemmtilegt safn
og vel hugsaðar sögur.“
PBB / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Um snilldartök Þórarins á smásagnaforminu þarf ekki að fjölyrða. Samfélagsgagnrýni hans hefur hins vegar aldrei verið eins beitt og í þessum sögum enda er hlutverk skáldskaparins nú sem aldrei fyrr að skilgreina veruleikann, fletta ofan af svikunum og segja satt.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir / Morgunblaðið