Brandarinn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 990 kr.
spinner

Brandarinn

990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 990 kr.
spinner

Um bókina

Brandarinn eftir Milan Kundera er fyrsta bók höfundarins, kom upphaflega út í Prag 1967 og er jafnan talin í hópi merkustu bóka hans; margir segja hana þá bestu. Sagan náði strax gífurlegum vinsældum og hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál.

Í þessari mögnuðu skáldsögu segir Kundera frá litríku fólki og rekur um leið hluta af menningarsögu Evrópu. Ungur og ástfanginn maður sendir elskunni sinni brandara á póstkorti til að ganga enn frekar í augun á henni. Kortið kemst í hendur skólafélaga þeirra og efnið spyrst út. Í því spennuþrungna andrúmslofti sem ríkir í Tékkóslóvakíu á sjöunda áratugnum verður þetta saklausa grín til þess að líf unga mannsins fer allt á annan endann. Hann missir vel launað starf og er sendur í refsivist í afskekktu héraði. Löngu síðar ætlar hann að leita hefnda en tímarnir eru gerbreyttir og hefndin snýst í höndunum á honum … Sagan er bráðfyndin hugleiðing um það hversu neyðarlega gloppótt þekking mannsins á sjálfum sér og öðrum getur verið. – Friðrik Rafnsson þýddi.

Milan Kundera fæddist í Tékkóslóvakíu árið 1929 en settist að í Frakklandi 1975. Hann hefur skrifað verk sín bæði á tékknesku og frönsku. Meðal þekktustu verka Kundera má nefna bækurnar Óbærilegur léttleiki tilverunnar, Ódauðleikinn, Bókin um hlátur og gleymsku og Kveðjuvalsinn.

 

2 umsagnir um Brandarinn

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

990 kr.
Óbærilegur léttleiki tilverunnar
2.290 kr.
3.100 kr.
Tjöldin - ritgerð í sjö hlutum
990 kr.
3.190 kr.
3.190 kr.
990 kr.

INNskráning

Nýskráning