Dauðs manns kona

3.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 464 3.990 kr.
spinner

Um bókina

Fjórar konur, tengdar til lífstíðar af myrku leyndarmáli

Snemmsumars 1897 lætur selskapsdaman Fredrika Nilsdotter draum sinn rætast og opnar einkaspæjarastofu undir karlmannsnafni. Þegar hinn alræmdi leikhússtjóri Georg Valentin steypist skyndilega til bana ofan af brúnni út í Katarinalyftuna, áttar Fredrika sig á að maðurinn var myrtur en framdi ekki sjálfsmorð eins og haldið er fram. Hún sér þarna langþráð tækifæri til að sýna hvað í henni býr. Til að takast á við málið þarf hún hjálp vinkvenna sinna en saman mynda þær óvenjulegt fjóreyki: ekkjan Olga, saumakonan Hildur og þjónustustúlkan Edit. Fyrr en varir eru þær flæktar í hættulegar aðstæður þegar þær leita svara í morðmáli þar sem þræðirnir liggja aftur í fortíðina.

Dauðs manns kona er opinská og áhrifamikil lýsing á lífinu í Stokkhólmi á þröskuldi nýrrar aldar, þar sem nútímavindar blása um samfélagið. Sagan lýsir tímum þegar konur voru ólögráða og háðar eiginmönnum, læknum og karlkyns ættingjum. Katarina Wennstam lýsir með einstökum hætti vaxandi vináttu fjögurra kvenna úr ólíkum stéttum og þrá þeirra eftir bjartari framtíð.

Gæpasaga ársins 2025 hjá Storytel í Svíþjóð ásamt því að hljóta Adlibris-verðlaunin 2024 og Crimetime-verðlaunin 2025.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Dauðs manns kona”

Tengdar bækur

Original price was: 3.790 kr..Current price is: 1.490 kr..
1.090 kr.
3.590 kr.
Original price was: 3.690 kr..Current price is: 999 kr..
2.390 kr.
Original price was: 4.590 kr..Current price is: 1.490 kr..
Original price was: 4.090 kr..Current price is: 2.499 kr..
Original price was: 5.890 kr..Current price is: 3.999 kr..
4.690 kr.
Íslensk tunga - fyrsta bindi
1.790 kr.
Original price was: 4.090 kr..Current price is: 2.499 kr..

INNskráning

Nýskráning