Flug í ókyrru lofti

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2022 432 4.290 kr.
spinner

Flug í ókyrru lofti

4.290 kr.

Flug i okyrru lofti - frontur_HQ
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2022 432 4.290 kr.
spinner

Um bókina

Ekkert nema kraftaverk virtist geta bjargað Icelandair og fátt blasti við nema gjaldþrot eftir viðvarandi offramboð og verðstríð á Norður Atlantshafi. Með gamlar flugvélar sem sjaldan flugu á réttum tíma og úr sér gengna viðskiptahugmynd gat félagið lítið gert til að mæta þörfum viðskiptavina annað en að lækka fargjöld. Félagið var komið í vítahring sem aðeins gat leitt til hins versta. En stjórnendur og starfsfólk misstu aldrei trúna. Þó að framtíðarsýnin næði stundum ekki nema út vikuna og viðskiptahugmyndin væri sú ein að lifa af unnu þau kraftaverkið og rufu vítahringinn og leiddu félagið til endurnýjunnar og arðbærs vaxtar.

Þetta er sagan af því hvernig tókst að skapa nýtt Icelandair og breyta einu versta flugfélagi Evrópu í eitt það besta. Hvernig nýjar hugmyndir, nýjar flugvélar, nýtt leiðakerfi og nýir innviðir og ekki síst sterk samstaða og traust forysta Sigurðar Helgasonar gáfu okkur framúrskarandi flugfélag. Þetta er sagan af ólgu og átökum og hvernig nýjar hugmyndir vekja upp andstæð sjónarmið svo oft hriktir í stoðunum. Þetta er sagan af því hvernig nýir eigendur komu stefnulausir að félaginu, sköpuðu óstöðugleika og ýttu frá góðum stjórnarháttum. En líka af því hvernig starfsfólkið dró vagninn áfram sama hvernig vindar blésu.

Pétur J. Eiríksson stóð í hringiðunni í 28 ár og segir hér opinskátt og hreinskiliðfrá því sem gerðist að tjaldabaki og gefur óvenjulega innsýn í rekstur Flugleiða, FL Group og síðan Icelandair Group.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Flug í ókyrru lofti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning