Fluguveiði fyrir byrjendur – rafbók
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. |
Um bókina
Þegar ég byrjaði að veiða á flugu var internetið ekki til. Fróðleikur fannst í bókum og tímaritum. Nú má segja að aðgangur að fróðleik sé nær ótakmarkaður. Það getur því reynst snúið fyrir byrjendur að finna áreiðanlegar upplýsingar.
Ég hef „Certified Casting Instructor“ réttindi frá „Fly Fishers International“ sem er staðlað prógram notað um allan heim. Ég ákvað að setja saman einfalda rafbók um fluguveiði fyrir byrjendur og lengra komna. Bókin er átta kaflar og byrjar á önglum síðan er fjallað um flugur, tauma og taumefni, hnúta, flugulínur og undirlínur, hjól, stangir. Í bókinni er hvorki fjallað um hvernig á að kasta né handtök við veiðar enda lærist það ekki af bók.
Ég hef aflað mér þekkingar víðs vegar, sem ég reyni að miðla hér. Ég hef reynslu af fluguveiði, fyrst ferskvatnsveiði á Íslandi, en síðan frá Texas, Bahamas og Florida þar sem ég bý nú, sem mest er saltvatnsveiði.
Nöfn ýmissa fiska, sem ég nefni til leiks, eru ekki til á íslensku svo ég viti. Mér er ekki kunnugt um íslenskt íðorðasafn fyrir fluguveiðar.














Umsagnir
Engar umsagnir komnar